Lífið

Frasar Jóns sem hafa náð að festa sig í sessi á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Gunnar Geirdal er klárlega frasakóngur landsins. 
Jón Gunnar Geirdal er klárlega frasakóngur landsins.  Vísir/Vilhelm

Jón Gunnar Geirdal er plöggari Íslands og rekur hann sitt eigið fyrirtæki Ysland. Hann starfar fyrir allskyns fyrirtæki til að koma þeirra vörum, viðburðum og merkjum á framfæri.

Undanfarin ár hefur Jón aftur á móti einbeitt sér einnig að sjónvarpsþáttagerð og komið að þáttum á borð við Jarðarförin mín og Í kvöld er gigg sem eru hans hugmyndir. Jón Gunnar Geirdal er gestur vikunnar í Einkalífinu og er hann síðasti gesturinn í þáttaröðinni.

Jón Gunnar byrjaði sinn feril í tengslum við fjölmiðla sem útvarpsmaður og vann til að mynda lengi vel á FM957. Hann hefur verið þekktur fyrir sína frasa og má segja að hann sé frasakóngur Íslands.

Til að mynda var Jón frasasérfræðingur í kringum Næturvaktina, Dagvaktina og Fangavaktina. Jón Gunnar á því marga frasa sem hafa hreinlega fest sig í sessi í okkar samfélagi eins og sjá má í þættinum hér að neðan, en þar fer hann nokkuð vel yfir nokkra góða frasa.

„Þessi frasatitill fór að límast á mann í kringum vaktirnar en þar er ég titlaður í creditlista undir frasafræðsla. Þetta á sér bara forsögu í einhverri kjánalegri málísku sem við vinirnir í útvarpinu vorum með,“ segir Jón og heldur áfram.

„Á þessu tímabilið nálgast Pétur Jóhann, við erum gamlir kunningjar úr FG, og Dóri Gylfa mig og þeir eru að skrifa þessa karaktera Ólaf Ragnar og Kidda Kasíó. Þetta var mjög sérstakt samtal þegar einhver hringir í þig og biður þig um að skrifa niður hvernig þú talar,“ segir Jón sem fór í kjölfarið yfir nokkra farsæla frasa.

Umræðan um frasana hefst þegar 6:30 mínútur eru liðnar af þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×