Matur

Lykilatriðin á bak við sykurbrúnaðar kartöflur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Albert Eiríksson er með kartöflurnar á hreinu fyrir jólin.
Albert Eiríksson er með kartöflurnar á hreinu fyrir jólin.

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin. Allt frá klassískum uppstúf, sykurbrúnuðum kartöflum og gljáa á hrygginn yfir í nýjar hugmyndir, líkt og vegan lausnir, Ketó jól, 12 tíma graflax og fleira.

Áherslan er sett á stóru smáatriðin sem fullkomna matinn um hátíðirnar.

Í fyrsta þættinum fer matgæðingurinn Albert Eiríksson ítarlega yfir það hvernig matreiða skal fullkomnar sykurbrúnaðar kartöflur.

Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.

Klippa: Lykilatriðin á bak við sykurbrúnaðar kartöflur

Hér að neðan má sjá uppskriftina sjálfa en allir þættirnir 12 eru nú þegar komnir inn á Stöð 2 Maraþon.

Sykurbrúnaðar kartöflur

  • 1 kg soðnar kartöflur (ekki forsoðnar, þær eru of vatnsmiklar)
  • 2/3 b sykur
  • 1/3 b púðursykur
  • 2 msk smjör
  • 1/2 tsk salt
  • 1 dl rjómi, sterkt kaffi eða vatn.

Flysjið kartöflurnar, best er að sjóða þær og flysja rétt áður en þær eru brúnaðar í sykrinum. Setjið sykur, púðursykur, smjör og salt á pönnu. Brúnið sykurinn og hellið rjómanum (eða kaffinu) út á þegar sykurinn er orðinn fallega brúnn, passið að hann brenni ekki. Hrærið stöðugt í en varlega. Hrærið í þangað til sykurinn hefur samlagast vökvanum, slökkvið undir og látið kartöflurnar varlega saman við (ekki láta kartöflurnar of snemma út í). Veltið þeim í sykurleginum í nokkrar mínútur.


Tengdar fréttir

Ástríðukokkarnir fá sviðið á Vísi

Nokkrir af fremstu ástríðukokkum Íslands deila litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin í nýjum þáttum á Vísi og Stöð 2 Maraþon en þættirnir bera heitir Lífið er ljúffengt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×