Golf

„Hefði ekki getað látið mig dreyma um þetta fyrir viku síðan“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sophia Popov trúir því varla að hún sé búin að vinna opna breska.
Sophia Popov trúir því varla að hún sé búin að vinna opna breska. Getty/Matthew Lewis

Sophia Popov spilaði best allra á AIG Women's Open á Royal Troon í Skotlandi og vann sinn fyrsta sigur á risamóti. Þetta var ekki aðeins hennar fyrsti sigur á risamóti heldur hennar fyrsti sigur á LPA mótaröðinni.

Sophia Popov lék holurnar 72 á 277 höggum eða á sjö höggum undir pari. Hún endaði tveimur höggum á undan Thidapa Suwannapura frá Tælandi.

Að segja að Sophia Popov hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti á kannski mjög vel við að þessu sinni.

Hin 27 ára gamla Sophia Popov kom inn í mótið í 304. sæti á heimslistanum í golfi og fékk sætið með því að enda með níu efstu á Marathon Classic mótinu. Popov átti ekki að vera með en það voru svo margar sem afboðuðu sig vegna COVID-19 þannig að Popov fékk tækifærið sem hún nýtt.

Þegsr keppni hófst á LPGA mótaröðinni eftir kórónuveiruhléið þá var Sophia Popov vissulega á staðnum en aðeins sem kylfusveinn fyrir vinkonu sína Anne van Dam.

Hún er ekki með fullan keppnisrétt á LPGA mótaröðinni því hún var einu höggi frá því að tryggja sér hann í úrtökumótinu í fyrra.

„Ég hefði ekki getað látið mig dreyma um þetta fyrir viku síðan. Það er ótrúlegt að golfíþróttin bjóði upp á það að svona geti gerst,“ sagði Sophia Popov eftir sigur sinn um helgina.

„Ég held að munurinn á milli kylfinga á milli vikna sé aldrei svona stór en það munaði kannski 15 til 20 höggum í þessari viku. Það er gaman að allir kylfingar eigi í hverri viku möguleika á því að vinna,“ sagði Sophia Popov.

„Þetta ver besta vika lífs míns,“ sagði Sophia Popov. Hún hefur verið að glíma við veikindi sem eiga sinn þátt í að hún sé ekki ofar á heimslistanum. Það gerir líka sigur hennar enn merkilegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×