Matur

Gerði áhugamálið að starfi sínu

Elín Albertsdóttir skrifar
Eygló Harðardóttir var á kafi í byggingarvinnu um páskana þegar myndin var tekin. Hún hefur ekki bara áhuga á matargerð heldur einnig smíðum.  Hún stundar nú nám í matreiðslu á Hótel Sögu og finnst gaman.
Eygló Harðardóttir var á kafi í byggingarvinnu um páskana þegar myndin var tekin. Hún hefur ekki bara áhuga á matargerð heldur einnig smíðum. Hún stundar nú nám í matreiðslu á Hótel Sögu og finnst gaman. MYND/ERNIR

Eygló Harðardóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, söðlaði heldur betur um í janúar og hóf matreiðslunám á Hótel Sögu undir handleiðslu Ólafs Helga Kristjánssonar yfirmatreiðslumanns.

Eygló, sem er 46 ára, stefnir á að klára sveinsprófið fyrir fimmtugt. Það er reyndar nóg að gera hjá henni um þessar mundir. Hún og eiginmaður hennar, Sigurður E. Vilhelmsson, standa í húsbyggingu í Mosfellsbæ auk þess sem hún stýrir undirbúningi og framkvæmdum fyrir nýtt fjölbýlishús Kvenna athvarfsins. 

„Ég byrjaði á samningi hjá Hótel Sögu í janúar og finnst það alveg dásamlegt. Þar er góður andi, skemmtilegir vinnufélagar og svo fæ ég að vinna með mat allan daginn,“ segir hún. Eygló vill ekki meina að gamall draumur sé að rætast með kokkastarfinu en hún hafi engu að síður alltaf haft ástríðu fyrir matargerð.

„Þegar ég tók ákvörðun um að hætta í pólitík þurfti ég að velta fyrir mér hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór. Matargerðin var það sem ég hafði mestan áhuga á og hefur fylgt mér alla ævi en ég velti líka fyrir mér smíði,“ segir hún. 

Eygló er með stúdentspróf frá FB og próf í listasögu frá Stokkhólms­háskóla. Þá nam hún viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Kokkanámið tekur fjögur ár og er bæði starfsnám og þrjár annir í Menntaskólanum í Kópavogi.

Þegar Eygló er spurð hvort eitthvað hafi komið henni á óvart í nýja starfinu, svarar hún því játandi. 

„Ég er núna í veisluþjónustunni og það hefur komið mér á óvart hversu mikið magn af mat við erum oft að undirbúa. Það er talsverður munur að elda fyrir fjölskylduna sína eða 250 manns. Einnig hópvinnan, verkaskiptingin og hversu gríðarlega mikilvæg skipulagning er hjá matreiðslumönnum,“ útskýrir Eygló. Hún segist ekkert hafa fundið fyrir því að hún sé elsti neminn. „Þarna starfar alveg ótrúlega líflegur og fjölbreyttur hópur saman. Fólk alls staðar að úr heiminum og með mismunandi bakgrunn. Það er mikilvægt að prófa nýja hluti í eldhúsinu og ef það mistekst þá reynir maður aftur. Okkur mistekst alltaf eitthvað í matseldinni sem og lífinu. Aðalatriðið er að læra af mistökum,“ segir hún. 

„Ég er mjög þakklát fyrir að fá tækifæri til að starfa við það sem mér finnst skemmtilegt,“ segir Eygló sem gefur lesendum einfaldar og góðar grilluppskriftir.



Sumarlegt kartöflusalat

500 g rauðar kartöflur, soðnar, skornar í grófa bita

1 sítróna

2-3 stilkar ferskt timjan

1 lítið búnt ferskt dill, saxað fínt

1-2 msk. smjör

1-2 msk. ólífuolía

2-3 handfyllir af klettasalati

Salt og pipar

Skolið kartöflurnar, skerið í hæfilega stóra bita og setjið í pott með vatni. Skrælið börkinn af sítrónunni út í pottinn og skutlið timjanstilkunum úti í. Sjóðið þar til kartöflurnar eru mjúkar þegar hnífi er stungið í þær, um það bil 10 mínútur.

Hellið vatninu af kartöflunum þegar þær eru orðnar soðnar og setjið til hliðar á meðan dillið er saxað.

Eygló Harðardóttir, grillmatur

Setjið kartöflurnar í skál ásamt dillinu, smjörinu og ólífuolíunni og blandið saman. Saltið og piprið.

Blandið saman 2-3 handfyllum af klettasalati við rauðu kartöflurnar rétt áður en kartöflusalatið er borið fram og kreistið safann úr hálfri sítrónu yfir.

Grillaðir hamborgarar með papriku- og cheddar-ostablöndu

230 g majónes

230 g rauð paprika, fínt söxuð

400 g cheddar-ostur, rifinn gróft

Salt og pipar

600 g nautahakk

Olía

4 hamborgarabrauð, skorin í tvennt og ristuð

8 sneiðar beikon, eldaðar stökkar

4 sneiðar laukur, grillaðar

4 sneiðar stór tómatur

1 stór súr gúrka, skorin þunnt

Best að skera fyrst niður grænmetið og rífa ostinn. Skerið brauðin ef þarf og setjið á ofnplötu. Setjið beikonið á bökunarpappír og á ofngrind.

Girnilegur hamborgari er alltaf vinsæll á útigrillið. Eygló gefur uppskrift að hamborgara og heitu kartöflusalati sem hún segir að sé mjög sumarlegt.

Majónesið er saltað og piprað að smekk í skál. Paprikan og osturinn eru sett saman við majón­esið. Blandið varlega saman. Setjið yfir skálina og kælið í allavega 30 mínútur fyrir notkun.

Undirbúið grillið. Bakið beikonið í ofni. Takið úr ofninum þegar það er orðið stökkt og setjið á pappír til að ná mestri fitunni af. Munið að rista brauðin, í ofni eða á grillinu ef það er pláss.

Saltið og piprið hakkið. Deilið því upp í fjóra jafn stóra skammta. Mótið hvern skammt í borgara með dæld í miðjunni fyrir ostablönduna. Berið olíu á báðar hliðar borgaranna. Grillið borgara á báðum hliðum þar til þeir eru orðnir gullinbrúnir, jafnvel brúnaðir og eldaðir í samræmi við óskir hvers og eins. Síðustu mínútuna af eldunartíma er ostablandan sett ofan á hvern borgara og grilllokið sett yfir, í um það bil 1 mín. Ekki gleyma að grilla laukinn létt.

Hamborgararnir fara á brauðin og þar ofan á er sett beikon, lauksneið, tómatsneið og súr gúrka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×