Innlent

Ferðamanninum bjargað í slæmu veðri og lélegu skyggni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skyggnið var með versta móti á jöklinum. Þessi mynd er frá aðgerðum í nótt.
Skyggnið var með versta móti á jöklinum. Þessi mynd er frá aðgerðum í nótt. Mynd/Björgunarfélag Hornafjarðar
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa fundið erlendan ferðamann sem leitað var að á Vatnajökli í gærkvöldi. Í færslu á Facebook-síðu Björgunarfélags Hornafjarðar segir að maðurinn hafi fundist klukkan 02:42 í nótt en ekkert amaði að honum.

Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir í samtali við Vísi að maðurinn hafi verið einn á göngu á jöklinum. Hann hafi verið kominn í vandræði og ekki séð fyrir sér að geta klárað ferð sína í versnandi veðri í gærkvöldi.

Maðurinn var fluttur niður jökulinn í snjóbíl en skyggni á jöklinum var afar lélegt, ef marka má mynd af björguninni. Í færslunni kemur fram að björgunarhópar hafi verið sendir af jöklinum, nema sleðahópur frá Höfn sem leitaði skjóls og hvíldar í skálanum á Grímsfjalli.

Tveir bílar sem sendir voru frá Höfn komu í hús á áttunda tímanum í morgun. Þá eru hópar af Suðurlandi og úr Reykjavík, sem kallaðir voru út vegna mannsins, ýmist komnir til baka eða á leiðinni heim.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×