Innlent

Árekstur varð á Lambhagavegi

Sylvía Hall skrifar
Mikið sást á bílunum eftir áreksturinn.
Mikið sást á bílunum eftir áreksturinn. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Harður árekstur varð á Lambhagavegi í Grafarholti í kvöld þegar tveir bílar skullu saman. Áreksturinn varð á svipuðum slóðum og ekið var á gangandi vegfaranda í lok síðasta mánaðar.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu urðu minniháttar slys á fólki og var enginn fluttur á slysadeild til aðhlynningar en dælubíll var sendur á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×