Innlent

Friðlýsing Dranga á Ströndum í kynningu

Atli Ísleifsson skrifar
Jörðin Drangar er yfir 100 km2 að flatarmáli og nær frá hábungu Drangajökuls að sjó á milli Bjarnarfjarðar og Drangavíkur.
Jörðin Drangar er yfir 100 km2 að flatarmáli og nær frá hábungu Drangajökuls að sjó á milli Bjarnarfjarðar og Drangavíkur. Umhverfisstofnun
Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Dranga á Ströndum sem óbyggð víðerni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Séu áformin kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Árneshrepp.

„Jörðin Drangar er yfir 100 ferkílómetrar að flatarmáli og nær frá hábungu Drangajökuls að sjó á milli Bjarnarfjarðar og Drangavíkur. Drangar eru landnámsjörð, þar sem Eiríkur rauði bjó eftir föður sinn og má færa líkur að því að þar hafi sonur hans, Leifur heppni fæðst. Land jarðarinnar er að langmestu leyti óbyggð víðerni. Landslag er tilkomumikið, jarðfræði fjölbreytileg, gróðurfar sérstakt og náttúrufegurð almennt. Víðernisupplifun er mikil og svæðið nær óraskað. Svæðið er hluti af víðáttumesta, samfellda óbyggða víðerni á Vestfjörðum,“ segir í tilkynningunni.

Friðlýsingin er sögð miða að því að „varðveita einkenni svæðisins, viðhalda fjölbreyttu og óvenjulegu landslagi sem og víðsýni, vernda heildstæð stór vistkerfi og tryggja að núlifandi og komandi kynslóðir geti notið einveru og náttúru svæðisins án truflunar af umfangsmiklum mannvirkjum og umferð vélknúinna farartækja,“ segir á vef Umhverfisstofnunar þar sem nánar er fjallað um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×