Bókaði þrenna tónleika helgina fyrir lokakeppni Björk Eiðsdóttir skrifar 21. febrúar 2019 06:30 Friðrik Ómar kátur baksviðs á seinna úrslitakvöldi undankeppninnar. Mynd/Mummi Lú
Jú, þetta er auðvitað smá merkilegt, að nota helgina fyrir keppni í þrenna stóra tónleika,“ segir Friðrik í léttum tón þegar blaðamaður bendir honum á að hafa rekið augun í tónleikaskipulag Hörpu komandi helgi. „Aftur á móti er líkaminn líka feginn að hvíla sig aðeins á söngvakeppnisgírnum.“ Friðrik bendir jafnframt á að þetta sé áttunda árið sem Freddie Mercury tónleikarnir séu settir á svið og hið ellefta sem heiðurstónleikar Villa Vill eru haldnir. „Svo það má segja að maður sé farinn að kunna þetta og sé alla vega ekki stressaður.“ Á föstudagskvöldið klukkan níu stígur Friðrik á svið sem hinn geysivinsæli Freddie Mercury og aftur á laugardagskvöldið klukkan níu. „En þarna á milli, á laugardaginn klukkan fimm eru líka einir Villa Vill tónleikar,“ segir Friðrik hógvær. „Ég fer því eiginlega úr leðurdressi, í jakkafötin og aftur í leðurdressið. En ég hlakka bara til enda með geðveikt band með mér en það er sama grunnbandið sem kemur að báðum sýningum þó við þurfum fleiri raddir til að syngja Queen-lögin.“ Eins og fyrr segir hafa báðar sýningar gengið árum saman og því ekki að undra að þetta séu vinsælustu sýningarnar sem Friðrik hefur komið að. „Þær ná líka báðar til breiðs aldurshóps, fólk er að koma með börnin sín jafnt og foreldra sína.“Það vakti athygli að Friðrik er svo sannarlega í sínu besta formi.Mynd/Mummi LúAndlegi og líkamlegi þátturinn kominn á réttan stað Þrátt fyrir að vera vel stemmdur fyrir komandi helgum viðurkennir Friðrik að tónleikarnir hafi allir verið bókaðir fyrir ári en þá hafi aftur á móti ekki staðið til að keppa í Söngvakeppninni á þessum tíma. „Ég er bjartsýnn fyrir lokakvöldið – og finnst ég vera tilbúinn í það.“ Það er margt sem þar kemur saman að sögn Friðriks. „Ég kem inn í keppnina með lag, en er ekki að semja það sérstaklega fyrir hana. Eins er bæði andlegi og líkamlegi þátturinn kominn á réttan stað. Það er allt annað en áður,“ segir Friðrik. „Þó það sé mikið að gera passa ég vel upp á mig, en ég þekki röddina það vel og veit að henni finnst betra að vera í notkun.“ En talandi um líkamlega þáttinn þá fór það varla fram hjá nokkrum sem horfði á keppnina síðustu helgi að Friðrik er í sínu besta formi. „Ég hef fengið rosa mikil viðbrögð og ekki síst frá „straight“ karlmönnum sem segjast sjá að ég hafi verið að pumpa,“ segir Friðrik og skellir upp úr. „En þetta er ekkert flókið, ég er búinn að vera á 16/8, þ.e. fasta í 16 klukkustundir á sólarhring og borða í átta, í 10 mánuði og æfi aldrei sjaldnar en fjórum sinnum í viku.“ Friðrik hefur sagt frá því hversu persónulegt lagið sé og viðurkennir að flutningurinn hafi tekið á. „Ég fékk til dæmis sinadrátt í tá á vinstri fæti í fyrsta versi og þurfti að syngja þannig. Það er fyndið að horfa á flutninginn eftir á vitandi af sinadrættinum,“ segir Friðrik og hlær. Ef hann ber sigur úr býtum er hann ákveðinn í að flytja lagið áfram á íslensku í lokakeppninni. „Mér finnst það skipta máli fyrir lagið auk þess sem mér persónulega finnst það að heyra lög á ólíkum tungumálum það skemmtilegasta við þessa keppni, þá fer maður ósjálfrátt að hlusta meira á lagið sjálft.“ Friðrik ætlar litlu að breyta fyrir lokakvöldið enda sáttur við atriðið eins og það er. „Ég ætla bara að bæta mig, en ég er með fullkomnunaráráttu og get alltaf gert betur!“
Birtist í Fréttablaðinu Eurovision Mest lesið Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Lífið „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Lífið Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Lífið Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“ Áskorun Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Lífið Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Lífið Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni Lífið „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tíska og hönnun „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist Fleiri fréttir Krakkatían: Prinsar, fótbolti og Hollywood pör „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni 93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö Norski stigakynnirinn hættir við Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Sjá meira