Jói Berg lagði upp sigurmarkið gegn Tottenham Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. febrúar 2019 14:30 Tom Heaton fagnar sigurmarkinu eins og enginn sé morgundagurinn vísir/getty Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp sigurmark Burnley gegn Tottenham á Turf Moor í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham var með mikla yfirburði í fyrri hálfleik og komu heimamenn ekki skoti á markið. Gestirnir náðu hins vegar ekki að gera neitt við yfirburði sína og var markalaust í hálfleik. Eftir tæpan klukkutíma fékk Burnley hornspyrnu. Fyrirgjöfin kom inn á teiginn, Chris Wood stökk manna hæst í teignum og skallaði boltann, sláin inn. Mauricio Pochettino var hins vegar brjálaður á hliðarlínunni. Ekkert að markinu, en það er stórt vafaatriði hvort Burnley hafi átt að fá hornspyrnuna sem markið kom úr. Gestirnir náðu hins vegar að svara fyrir mögulegt óréttlætið á vellinum. Harry Kane var að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli og að sjálfsögðu var það markahrókurinn sem skoraði jöfnunarmarkið. Hann slapp inn fyrir eftir sofandahátt í varnarleik Burnley upp úr innkasti og kláraði laglega framhjá Tom Heaton. Á 80. mínútu kom Jóhann Berg Guðmundsson inn á. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið að glíma við meiðsli og byrjaði leikinn á bekknum. Þremur mínútum seinna var hann búinn að koma Burnley yfir. Vissulega skoraði Ashley Barnes markið en Jóhann Berg gerði frábærlega í undirbúningnum, fékk boltann rétt fyrir utan teiginn, kom sér í fyrirgjafastöðu og Barnes þurfti ekkert að gera nema stýra boltanum yfir línuna. Lokatölur á Turf Moor 2-1 fyrir Burnley sem er enn án taps árið 2019. Sigurinn kemur þeim upp í 13. sæti deildarinnar og eru nú sex stig niður í fallsæti. Tottenham er hins vegar í hættu á að missa af lestinni í titilbaráttunni, fimm stigum á eftir Liverpool og Manchester City. Viðtal við Mauricio Pochettino Viðtal við Sean Dyche Enski boltinn