Handbolti

ÍBV síðasta liðið í undanúrslitin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hrafnhildur og stúlkurnar hennar eru komnar í undanúrslit.
Hrafnhildur og stúlkurnar hennar eru komnar í undanúrslit. vísir/bára
ÍBV varð í dag fjórða og síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Coca-Cola bikars kvenna eftir sjö marka sigur á KA/Þór á heimavelli, 28-21.

Jafnræði var með liðunum fyrsta stundarfjórðunginn en staðan var 5-5 eftir fimmtán mínútur. Þá skoraði ÍBV hins vegar þrjú mörk í röð og leiddi svo í hálfleik 13-11.

Það bil náðu gestirnir frá Akureyri aldrei að brúa þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir í síðari hálfleik. Munurinn varð svo nokkuð stór að lokum eða sjö mörk.

ÍBV verður því ásamt Val, Stjörnunni og Fram í Höllinni en undanúrslitin fara fram sjöunda mars og úrslitaleikurinn tveimur dögum síðar.

Markahæstar hjá ÍBV voru þær Greta Kavaliauskaite, Arna Sif Pálsdóttir og Ester Óskarsdóttir með fimm mörk. Martha Hermannsdóttir var í sérflokki í liði gestanna og skoraði níu mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×