Íslenski boltinn

Vinnur KR Reykjavíkurmótið í 39. sinn?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lyfta Pálmi og félagar bikar í kvöld?
Lyfta Pálmi og félagar bikar í kvöld? vísir/ernir
Úrslitaleikur Reykjavíkurmotsins í knattspyrnu fer fram í kvöld er KR og Fylkir mætast í Egilshöllinni en leikurinn hefst klukkan 20.00.

KR vann sigur á Val í undanúrslitunum í stórkostlegum knattspyrnuleik en lokatölur urðu 5-3. KR var 3-1 undir eftir rúman klukkutímaleik en snéri leiknum sér í hag og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.

Það var öllu rólegri undanúrslitaleikur milli Fylkis og Inkasso-liðs Fjölnis en Fylkir vann 2-0 sigur með tveimur mörkum skömmu fyrir hálfleik. Þannig fóru þeir í úrslitaleikinn.

Saga félaganna frá upphafi Reykjavíkurmótsins árið 1915 er ansi ólíklegt. KR hefur unnið mótið 38. sinnum en Fylkir einungis fjórum sinnum en getur unnið það í fimmta sinn í kvöld.

Flautað verður til leiks klukkan 20.00 í kvöld og leikið verður í Egilshöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×