Innlent

Snjóflóðið hæglega getað sópað fólki niður í fjöru

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Stefán Ó. Jónsson skrifa
Óli Stefán Flóventsson ók inn í snjóflóðið í morgun.
Óli Stefán Flóventsson ók inn í snjóflóðið í morgun. Aðsend
Einn ökumannanna sem kom að snjóflóðinu sem féll yfir Þjóðveg 1 í Hvalnesskriðum telur að vegfarendur hafi verið þar í hættu. Engin slys urðu þó á fólki og þakkar hann stálgrindverki að ekki fór verr.

Óli Stefán Flóventsson, sem margir þekkja af þjálfunarstörfum í knattspyrnu, segist hafa ekið rakleiðis inn í snjóflóðið sem féll yfir veginn á ellefta tímanum í morgun. Hann segir í samtali við Vísi að skyggnið hafi verið lítið fyrir austan í morgun og að hann hafi ekki rekið augun í skaflinn á veginum fyrr en það var orðið of seint. Það eina í stöðunni fyrir hann hafi því verið að halda fast í stýrið og aka rakleiðis inn í snjóflóðið.

Þar sat bíll hans fastur og segir Óli að ómögulegt hafi verið að opna dyr bílsins. Honum hafi engu að síður tekist að krafsa sig út. Þá fyrst segist Óli hafa áttað sig á því að hann hafði ekið inn í snjóflóð.

Sjá einnig: Rútan ók inn í nýfallið snjóflóðið

Töluverð umferð var á svæðinu í morgun, til að mynda óku þrjár rútur fram á snjóflóðið eins og Vísir greindi frá fyrr í dag. Meðan beðið var eftir því að Vegagerðin kæmi á vettvang og ryddi veginn segir Óli að einhverjir vegfarendur hafi yfirgefið bíla sína til að aðstoða þá ökumenn sem sátu fastir á veginum.

Viðstöddum stóð þó ekki á sama þegar annað snjófljóð féll úr hlíðinni og hafnaði á varnarvegg, sem Óli lýsir sem stálgirðingu. Höggið var mikið og segir Óli að snjórinn hafi dreifst yfir vegfarendur. Óhætt sé að áætla að ef ekki hefði verið fyrir girðinguna hefði snjóflóðið „sópað fólkinu niður í fjöru,“ eins Óli kemst að orði.

Þá hafi viðstaddir áttað sig á því að líklega væru þeir í hættu og því tekið sig til við að losa fasta bíla. Rúturnar hafi bakkað í skjól og bíll Óla dreginn út úr skaflinum. Þrátt fyrir höggið segir Óli að bíll sinn hafi verið ökufær og tókst honum að halda leið sinni áfram. Vegurinn sé þó ennþá lokaður, ef marka má heimasíðu Vegagerðarinnar.

Hér að neðan má sjá Facebook-færslu Óla Stefáns um aðstæður á vettvangi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×