Enski boltinn

Manchester City „líkaði“ við færslu West Ham eftir jafnteflið gegn Liverpool

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik gærkvöldsins.
Úr leik gærkvöldsins. vísir/getty
West Ham gerði Manchester City greiða í toppbaráttunni í gær er West Ham náði 1-1 jafntefli við topplið Liverpool en City er í baráttu við Liverpool á toppnum.

Liverpool gat náð fimm stiga forskoti hefði liðið unnið á Ólympíuleikvanginum í gærkvöldi en West Ham kom í veg fyrir það.

Eftir leikinn setti West Ham á Twitter-síðu sína mynd af leikmönnum liðsins fagna jöfnunarmarki Michail Antonio og skrifaði við:

„Frábær frammistaða. Þið gerðuð okkur stolta drengir.“ Nokkru síðar setti West Ham inn nýja færslu þar sem sést að Manchester City hefur líkað við færsluna og settu skemmtilegan „emoji“ kall við.

Munurinn milli Liverpool og City er nú þrjú stig en spennan er farin að magnast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×