Innlent

Brýnna verk að skoða auglýsingasölu RÚV

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Sveinn R. Eyjólfsson er margreyndur í rekstri dagblaða.
Sveinn R. Eyjólfsson er margreyndur í rekstri dagblaða. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sveinn R. Eyjólfsson, einn reyndasti blaðaútgefandi landsins, telur frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla litlu breyta fyrir þá miðla sem mestu máli skipti. Endurskoðun á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði væri alvöru aðgerð.

„Ég er þeirrar skoðunar að þetta frumvarp hafi afskaplega lítið að segja fyrir alvöru fjölmiðla. Þetta er kannski til þess fallið að halda lífinu í þessum minni miðlum sem er kannski sjónarmið í sjálfu sér en breytir engu um rekstrarumhverfi þeirra fjölmiðla sem skipta mestu máli,“ segir Sveinn R. Eyjólfsson, fyrrverandi blaðaútgefandi, um frumvarp menntamálaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla.

Sveinn hefur mikla reynslu af blaðaútgáfu en hann var meðal annars útgefandi Vísis og stofnaði ásamt öðrum Dagblaðið, DV og Fréttablaðið. Aðspurður segist hann ekki þora að segja til um það hvort staða fjölmiðla nú sé verri en á hans tíð.

„Ég var í þessu í 40 ár og þetta var upp og niður á þeim tíma. Maður þurfti að glíma við alls konar aðstæður.“

Frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra gengur út á að einkareknir fjölmiðlar geti að uppfylltum skilyrðum fengið opinbera styrki til að mæta launakostnaði á ritstjórnum. Fleiri þættir eru til skoðunar eins og staða RÚV á auglýsingamarkaði.

„Það er orðið löngu tímabært að fara yfir hlut RÚV á auglýsingamarkaði. Slíkar aðgerðir hefðu miklu meira vægi fyrir rekstur fjölmiðla. Það væri raunveruleg aðgerð.“

Fyrirmynd frumvarpsins er meðal annars sótt til hinna Norður­landanna en Sveinn bendir á að þangað væri hægt að sækja fleiri hugmyndir.

„Varðandi dagblöðin væri það skilvirkasta leiðin að fara þá leið sem Norðmenn fóru og veita styrki vegna pappírskaupa. Það kom dagblöðum mjög vel því þar er stór hluti kostnaðar. Þetta er líka markviss stuðningur því það fer ekkert á milli mála í hvað hann fer.“

Hann telur að sú þróun sem átt hefur sér stað í útgáfu dagblaða á Vesturlöndum þar sem blöðum fækkar og upplag minnkar verði ekki breytt. „Þetta er náttúrulega allt annað umhverfi en var í minni tíð. Þótt sjónvarpið kæmi þarna inn og færi að slást við okkur um auglýsingar þá var ekki netið þar að auki.“

Sveinn rifjar upp að þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í dagblaðabransanum hafi verið til staðar ákveðinn ríkisstyrkur sem fólst í því að ríkið keypti ákveðið margar áskriftir að dagblöðunum.

„Það var eiginlega mitt fyrsta verk þegar ég byrjaði á Vísi að segja þessum áskriftum upp vegna þess að ég vildi ekki ríkisstyrk. Þar að auki vissi ég með sjálfum mér að lausasalan myndi taka við þessu sem reyndist raunin. Þetta var eini ríkisstyrkurinn á minni tíð en þetta var fellt niður upp úr þessu.“


Tengdar fréttir

Sjálfstæðismenn amast við fjölmiðlafrumvarpi

Óánægjuraddir innan raða Sjálfstæðismanna með fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur. Þingmenn segja hafa komið á óvart þegar ráðherrann sagði einhug í ríkisstjórn um málið. Lilja segist ekki hafa heyrt af óánægju Sjálfstæðismanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×