Lífið

Álfrún og Viktor Bjarki giftu sig „loksins“ í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Glæsileg nýgift hjón!
Glæsileg nýgift hjón! Instagram
Kátt var á hjalla í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi í gærkvöldi þar sem haldið var upp á brúðkaup þeirra Álfrúnar Pálsdóttur og Viktors Bjarka Arnarssonar sem hafa nú „loksins“ gengið í það heilaga.

Álfrún og Viktor Bjarki kynntust fyrst í grunnskóla og hafa hafa verið saman um margra ára skeið. Þau eiga saman tvö börn.

Gestir í veislunni voru duglegir að birta myndir úr veislunni á Instagram undir myllumerkinu #váloksins.

Álfrún og Viktor Bjarki.

Mikið um að vera

Álfrún var nýverið ráðin kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands, en hafði áður ritstýrt tímaritinu Glamour og starfað hjá Fréttablaðinu. 

Knattspyrnumaðurinn Viktor Bjarki er aðstoðarþjálfari HK og starfar hjá Borgun. Hann hefur áður leikið með Víkingi Reykjavík, Fram og KR. Þá er hann jafnframt með umboð fyrir Sjöstrand-kaffivélunum vinsælu.

Skemmtikrafturinn Sóli Hólm var veislustjóri og dönsuðu veislugestir við takta hljómsveitarinnar Bjartra sveiflna.

Vísir óskar þeim Álfrúnu, Viktori Bjarka og börnunum innilega til hamingju!

 

 
 
 
View this post on Instagram
#váloksins

A post shared by thoramagnea (@thoramagnea) on Jan 19, 2019 at 6:05pm PST

 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×