Lífið

Tíu ára áskorunin og allir helstu brandararnir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tíu ár á milli mynda af forseta Bandaríkjanna.
Tíu ár á milli mynda af forseta Bandaríkjanna.
Eins og flestallir sem eru á samfélagsmiðlum hafa tekið eftir eru margir að deila tíu ára gömlum myndum af sér og bera saman við útlit þeirra í dag.

Svo er nauðsynlegt að setja kassamerkið #10yearchallenge við myndina. Fjölmargir þekktir Íslendingar hafa sett inn myndir af sér í tengslum við umrædda áskorun og hefur þetta verið í tísku um allan heima.

Þegar svona æði skýtur upp kollinum birtast allir helstu grínarar heims og reyna slá á létta strengi.

YouTube-síðan Scoop hefur nú tekið saman fjölmörg gríndæmi í #10yearchallenge á vefnum og má sjá þau hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×