Innlent

Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur á Suðurlandsbraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi árekstursins í dag.
Frá vettvangi árekstursins í dag. Vísir/einar
Árekstur tveggja bíla varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar um fjögurleytið í dag. Einn var fluttur á slysadeild, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang þegar tilkynning barst um áreksturinn. Einhverjar umferðartafir urðu vegna óhappsins en nokkuð hreinsunarstarf þurfti að vinna á vettvangi.

Slökkvilið hafði lokið vinnu á slysstað á fimmta tímanum en lögregla var enn á staðnum nú skömmu eftir klukkan fjögur. Varðstjóri hjá slökkviliðinu þekkti ekki tildrög slyssins og gat ekki sagt til um það hvort hálka á veginum hefði átt hlut að máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×