Björgólfur leiðir fjárfestahópinn Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifar 23. janúar 2019 06:15 Björgólfur Jóhannsson sagði starfi sínu lausu sem forstjóri Icelandair Group í lok ágúst í fyrra. Hann leiðir hóp fjárfesta sem hefur, ásamt Loftleiðum Icelandic, gert tilboð í 51 prósents hlut í ríkisflugfélaginu á Grænhöfðaeyjum. Fréttablaðið/Vilhelm
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, leiðir hóp fjárfesta sem taka þátt, ásamt Loftleiðum Icelandic, dótturfélagi flugfélagsins, í kaupum á 51 prósents hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum, samkvæmt heimildum Markaðarins. Auk Björgólfs, sem sagði forstjórastarfinu lausu í lok ágúst í fyrra, samanstendur fjárfestahópurinn meðal annars af þeim Baldvini Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Samherja og stjórnarformanni Eimskips, og Steingrími Halldóri Péturssyni, fjárfesti og framkvæmdastjóra fjármálasviðs Olís. Loftleiðir Icelandic og fjárfestahópurinn gerðu bindandi kauptilboð í hlutinn í nóvember í fyrra og bíða enn samþykkis frá stjórnvöldum á Grænhöfðaeyjum. Icelandair Group segist í svari við fyrirspurn Markaðarins vænta svara frá ríkisstjórninni í febrúarlok en þá rennur út lögformlegur frestur til þess að svara tilboðinu. Umrætt kauptilboð í meirihluta hlutafjár í ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja var lagt fram í nafni félagsins Loftleiðir Cabo Verde en Loftleiðir Icelandic fara með 70 prósenta hlut í félaginu og fjárfestahópurinn 30 prósenta hlut. Baldvin Þorsteinsson var kjörinn stjórnarformaður félagsins á hluthafafundi 12. nóvember síðastliðinn og um leið tóku sæti í stjórn þeir Steingrímur Halldór og Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic. Gangi kaupin eftir verður kaupverðið á hlutnum í Cabo Verde Airlines óverulegt og mun aðeins hlaupa á um tugum milljóna króna, eftir því sem Markaðurinn kemst næst. Tekið var fram í tilkynningu sem Icelandair Group sendi til Kauphallarinnar í lok nóvember að greitt yrði fyrir eignarhlutinn að hluta til með þeirri vinnu sem starfsmenn Loftleiða Icelandic hafa þegar innt af hendi en félagið hefur átt í samstarfi við ríkisflugfélag Grænhöfðaeyja um nokkurt skeið. Þá kom jafnframt fram í tilkynningunni að kaupin myndu hafa „óveruleg áhrif“ á reikningsskil Icelandair Group enda yrði Cabo Verde Airlines ekki hluti af samstæðureikningi íslenska flugfélagsins. Kaup Loftleiða Icelandic og fjárfestahópsins eiga sér langan aðdraganda. Þannig samdi íslenska flugfélagið við stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum í ágúst árið 2017 um endurskipulagningu Cabo Verde Airlines en á þeim tíma fór ný ríkisstjórn landsins að huga að einkavæðingu ríkisflugfélagsins. Veitti íslenska félagið þá ráðamönnum á Grænhöfðaeyjum ráðgjöf við að endurskipuleggja ríkisflugfélagið sem og að styrkja alþjóðaflugvöll eyjanna og byggja þar upp tengiflugsbanka fyrir alþjóðaflug. Áður höfðu flugfélögin átt í samstarfi um flugafgreiðslu á Logan-flugvelli í Boston í Bandaríkjunum um árabil. Ef af kaupum Íslendinganna verður er ætlunin sú að Cabo Verde Airlines, sem hefur nú þegar rekstrarleyfi til þess að fljúga áætlunarflug til Evrópu og Bandaríkjanna, taki upp sams konar viðskiptamódel og Icelandair, þar sem Grænhöfðaeyjar yrðu tengimiðstöð fyrir farþega á leið yfir Atlantshafið. Haft var eftir Árna Hermannssyni í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallarinnar að tækifæri væru fyrir hendi fyrir vel skipulagt tengiflug á milli Evrópu og Suður-Ameríku annars vegar og vesturhluta Afríku og Norður-Ameríku hins vegar. „Staðsetning eyjanna er ákjósanleg fyrir slíka uppbyggingu,“ sagði Árni. Til viðbótar yrði mögulegt að nýta flugvélar úr flota Icelandair og eftir atvikum áhafnir félagsins í rekstri Cabo Verde Airlines. Cabo Verde Airlines er agnarsmátt flugfélag í alþjóðlegum samanburði og rekur sem dæmi aðeins tvær farþegaþotur. Haft var eftir Erlendi Svavarssyni, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Loftleiða Icelandair, í Morgunblaðinu í lok nóvember að gert væri ráð fyrir að þriðja þotan bættist í flotann í mars á þessu ári og að næsta sumar yrðu vélar félagsins orðnar fimm.
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Grænhöfðaeyjar Mest lesið „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Kann best við sig í háspennunni Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Sjá meira