Innlent

Spá fallegu vetrarveðri í dag

Birgir Olgeirsson skrifar
Á morgun kemur nálgast lægð sunnan úr hafi og skil hennar ganga inn á land.
Á morgun kemur nálgast lægð sunnan úr hafi og skil hennar ganga inn á land. Vísir/Vilhelm
Veðurstofa Íslands spáir fögru vetrarveðri á snævi þöktu landinu í dag, en él á víð og dreif og frost að 14 stigum inn til landsins. Dregur úr éljum þegar líður að kvöldi, en gengur í norðankalda og fer að snjóa norðaustanlands.

Á morgun nálgast lægð sunnan úr hafi og skil hennar ganga inn á land. Hvessir þá af suðaustri og fer að snjóa, fyrst sunnan- og vestanlands, en síðar einnig fyrir norðan og austan.

Lægðinni fylgir hlýtt loft, sem hækkar hita upp fyrir frostmark, þ.a.l. blotnar við suðurströndina. Hlýindin standa stutt því á föstudag snýst í norðaustanátt með snjókomu eða éljum og kólnar aftur í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×