Lífið

20 hugmyndir fyrir bóndann

Björk Eiðsdóttir skrifar
Ýmislegt er hægt að gera sér til dundurs á Bóndadaginn.
Ýmislegt er hægt að gera sér til dundurs á Bóndadaginn. Getty/Peopleimages

Bóndadagurinn er á morgun og þá gleðja unnustur og eiginkonur sína menn með ýmsum hætti. Fréttablaðið fór á stúfana og skoðaði hvað er í boði fyrir kröfuharða menn og einnig þá sem vilja frekar eitthvað lítið og voðalega krúttlegt.



Bjór

Bjórmenning íslendinga er orðin mun þroskaðri og margir kaupa sér bjór til að njóta. Í dag hefst sala á þorrabjór en ÁTVR áætlar að vera með 14 tegundir í boði. Hví ekki að skella sér í ÁTVR og kaupa nokkrar góðar tegundir fyrir bóndann.



Vín

Sumir eru ekkert fyrir bjór en gott rauðvín skorar hátt. Það er líka hægt að drekka vín og njóta. Það má. Þungt og gott rauðvín getur gert kraftaverk á ísköldu kósíkvöldi.



Brennivín

Dæmigerður þorramatur samanstendur m.a. af súrsuðum hrúts­pungum, súrum hval, sviðum, sviðasultu, harðfiski, hangikjöti, laufabrauði og hákarli. Jólabrennivínið frá Ölgerðinni er dásamlegt og passar með öllum þorramat.



Bíókort

Það er hægt að fá bíókort hjá flestum kvikmyndahúsum. Nú eru Óskarsmyndirnar að rúlla hægt og bítandi um hvíta tjaldið. Hver veit. Kannski býður hann með sér.



Áskrift að Stöð 2 sport

Enski boltinn hefur sjaldan verið meira spennandi. Meistaradeildin er handan við hornið. Olís-deildirnar í handbolta og Domino’s-deildirnar sömuleiðis. Superbowl og svona mætti lengi telja. Kostar alveg helling en hann verður þakklátur. Það er gefið.



Mynd

Það þarf ekkert að kosta pening. Stelstu til að prenta út í vinnunni fallega mynd sem þú átt í símanum þínum á a4 pappír og kauptu ramma í Ikea.



Netflix

Vertu búin að ákveða mynd eða þátt. Ekki eyða kvöldinu í að leita.



Miðar á viðburð

Á miði.is og tix.is er endalaust úrval. Helgi Björns, Queen og Jóhanna Guðrún í tónlistinni. Mið-Ísland, Sóli Hólm og Jimmy Carr í gríninu og svona mætti lengi telja.



Sundkort

Vanmetin snilld.



Húðflúr

Það er lengi hægt að mála sig fallegum litum. Það er enginn að tala um heila ermi eða ljón á bringuna. Bara lítið en fallegt.



Skeggolía

Þarfaþing hjá loðnum.



Post it skilaboð

Karlmenn eru margir mjúkir. Margir karlmenn vilja að konurnar þeirra séu smá rómantískar.



Kaffibrúsi

Alla karlmenn vantar góðan kaffibrúsa. Það er alltaf til staður fyrir kaffibrúsa.



Kerti

Þetta þarf ekki að vera flókið. Kveiktu á fullt af kertum og gerðu svolítið kósí í kringum ykkur. Hjúfrið ykkur hvort að öðru og lesið saman, horfið saman eða njótið þess bara að vera í saman.



Ljóð

Allir Íslendingar elska góða íslensku og ljóðlist hefur fylgt okkur frá upphafi. Gott ljóð er snilld og slæmt ljóð er fyndið. Prófaðu skáldkonuna í þér.



Komdu heim með ís

Ef þú ert gersneydd hugmyndum má alltaf koma heim með lítra af ís og heita súkkulaðisósu. Það er ekkert betra, hvort sem það er vetur, sumar, vor eða haust.



Dekur

Það má líka bara henda gamla stirða líkamanum í smá dekur.



Svunta

Áhugakokkar eiga væntanlega svuntu en það má lengi bæta á sig blómum. Falleg leðursvunta er nánast stofustáss.



Veiðin

Skot- eða stangveiðimenn vilja alltaf eiga meira. Þeir þiggja glaðir nýjan kíki, nýja flugu, nýjar leirdúfur. Kíkið upp í Hlað uppi á Höfða og njótið.



Vasaúr

Það eru margir í vestum yfir skyrtunni á þorrablótum og það er töff að vera með vasaúr. Kostar ekkert sérstaklega mikið en bætir lúkkið um heilan helling.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×