Enski boltinn

Ramsey ætlar ekki að fara í janúar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ramsey er að spila sína síðustu leiki fyrir Arsenal.
Ramsey er að spila sína síðustu leiki fyrir Arsenal. vísir/getty
Aaron Ramsey er meira en til í að klára samning sinn við Arsenal sem rennur út næsta sumar.

Eðlilega hefur mikið verið rætt um hvort hann fari frá félaginu nú í janúar fyrst hann er að verða samningslaus. Arsenal dró samningstilboð sitt til leikmannsins til baka í september. Sú staða hefur ekkert breyst.

Alls konar orðrómar eru um áhuga annarra félaga á leikmanninum og meðal annars sagt að bæði Juventus og Bayern hafi áhuga á honum. Þau félög sem hafa áhuga mega hefja samningsviðræður við hann núna.

Persónulega mun Ramsey fá betri samning næsta sumar og því ekkert óeðlilegt við að hann vilji klára tímabilið með Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×