Handbolti

Svona var HM-hópur Íslands kynntur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Landsliðsþjálfararnir Guðmundur Þórður Guðmundsson og Gunnar Magnússon.
Landsliðsþjálfararnir Guðmundur Þórður Guðmundsson og Gunnar Magnússon. vísir/eyþór
Strákarnir okkar halda áleiðis til Þýskalands á morgun til þess að spila á HM. Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti fyrr í dag hverjir fara í það flug.

Guðmundur þarf að tilkynna sextán leikmenn til leiks en hann tilkynnti að hann muni taka sautjánda leikmanninn með sér til Þýskalands.

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson varð fyrir meiðslum á dögunum og fór í skoðun í gær. Í dag kom í ljóst að fyrirliðinn verður ekki með á HM og er það fyrsta stórmót Íslands án Guðjóns Vals síðan HM 1997 í Kumamoto.

Upptöku og beina textalýsingu frá fundinum má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×