Körfubolti

Frá Íslandsmeisturunum til Egilsstaða

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
KR er búið að segja upp Dino.
KR er búið að segja upp Dino. vísir/bára
Króatinn Dino Stipcic var látinn fara frá KR á dögunum en hann mun þó halda áfram að spila körfubolta á Íslandi því hann hefur samið við 1. deildar lið Hattar.

Stipcic spilaði alla ellefu leiki KR í fyrri hluta Domino's deildarinnar og skilaði 7,3 stigum í meðalatali í leik og 4,5 fráköstum.

„Dino hefur ekki náð sér á strik í leik með KR en að öllu öðru leyti var leikmaðurinn til fyrirmyndar. Félagið þakkar Dino fyrir sitt framlag en hann var einnig aðstoðarþjálfari hjá félaginu,“ sagði í tilkynningu sem KR sendi frá sér fyrir jólin.

Þá kemur Andre Hughes einnig til Hattar frá Vestra.

Höttur er í fjórða sæti 1. deildar karla með 14 stig eftir 10 leiki, sex stigum á eftir Þór frá Akureyri á toppnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×