Flautumark Inter gegn Napoli og forskot Juventus eykst

Anton Ingi Leifsson skrifar
Baráttan var hörð í kvöld en einungis eitt mark var skoraðe.
Baráttan var hörð í kvöld en einungis eitt mark var skoraðe. vísir/getty
Lautaro Martinez tryggði Inter sigur gegn Napoli er liðin mættust í síðasta leik átjándu umferðarinnar.

Napoli þurfti að vinna leikinn til þess að missa Juventus ekki lengra frá sér en þeim tókst það ekki.

Þeir léku einum færri frá 81. mínútu er Kalidou Koulibaly fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Sigurmarkið kom í uppbótartíma og það skoraði Lautaro Martinez en hafði komin inn á sem varamaður á 83. mínútu.

Napoli er í öðru sætinu með 41 stig, átta stigum á eftir toppliði Juventus en Inter er í þriðja sætinu með 36 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira