Innlent

Engar eignir fundist upp í tap Hörpu

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Kári Sturluson fékk fyrirframgreiðslu á miðasölu tónleika Sigur rósar í fyrra. Sá peningur hefur aldrei skilað sér aftur.
Kári Sturluson fékk fyrirframgreiðslu á miðasölu tónleika Sigur rósar í fyrra. Sá peningur hefur aldrei skilað sér aftur. Fréttablaðið/Ernir
„Það er ekki útlit fyrir að það verði eitthvað sérstakt til skipta,“ segir Haukur Örn Birgisson, skiptastjóri þrotabús KS Productions. Hann er ekki bjartsýnn á að nokkuð fáist upp í lýstar kröfur í búið, en þar er Harpa ohf. stærsti kröfuhafinn.

Eins og Fréttablaðið greindi fyrst frá í september í fyrra fékk tónleikahaldarinn Kári Sturluson og félag hans KS Productions fyrirframgreiðslu upp á 35 milljónir króna af miðasölutekjum af tónleikum Sigur Rósar sem fóru fram í desember í fyrra. Harpa og Sigur Rós fóru fram á kyrrsetningu eigna Kára og félagsins en síðar var gjaldþrotabeiðni þeirra samþykkt og staðfest fyrir dómi í sumar. Síðan þá hefur skiptastjóri unnið að því að finna eignir upp í kröfu Hörpu og sveitarinnar.

Fyrir dómi hafði komið fram að Harpa og Sigur Rós hefðu skipt með sér tapinu á sínum tíma svo tónleikarnir gætu farið fram. Í yfirlýsingu frá sveitinni og forstjóra Hörpu, Svanhildi Konráðsdóttur, kom fram að fjármunirnir væru ekki glataðir heldur væru vonir bundnar við endurheimtuferlið. Nú liggur fyrir að þær endurheimtur verða rýrar.

„Það eru engar sérstakar eignir sem hafa fundist í búinu og óvíst hvort það komi eitthvað upp í úthlutun til þeirra krafna sem var lýst,“ segir Haukur Örn.

Svanhildur Konráðsdóttir segir ekkert tilefni til að velta vöngum yfir heimtum í þrotabúi KS Productions þar sem málið sé enn í ferli og niðurstaðan liggi ekki fyrir.


Tengdar fréttir

Kári Sturluson úrskurðaður gjaldþrota

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu tónlistar-og ráðstefnuhússins Hörpu um að tónleikahaldarinn Kári Sturluson og fyrirtæki hans, KS Productions, verði úrskurðað gjaldþrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×