Viðskipti innlent

Ríkisstjórnin vill draga úr eignarhaldi á bönkum

Jakob Bjarnar skrifar
Í Hvítbókinni eru færð rök fyrir því að vert sé að losa um eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum og lækka á þau skattaheimtu.
Í Hvítbókinni eru færð rök fyrir því að vert sé að losa um eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum og lækka á þau skattaheimtu. visir/vilhelm
Svokölluð Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið hefur verið sett fram af hálfu Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þar eru meðal annars sett fram rök sem um að vert sé að draga úr eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum.

„Tekið er fram að rök séu fyrir því að dregið verði úr víðtæku eignarhaldi ríkisins í fjármálafyrirtækjum til þess að draga úr áhættu, fórnarkostnaði og neikvæðum samkeppnisáhrifum. Í aðdraganda sölu bankanna sé ástæða til að setja í forgang lækkun sértækra skatta og lögfestingu varnarlínu. Þá sé mikilvægt að stjórnvöld hugsi heildstætt um framtíðareignarhald þar sem fjölbreytt eignarhald sé til þess fallið að ná sátt og draga úr áhættu,“ segir í tilkynningu sem sett hefur verið fram á heimasíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis Bjarna Benediktssonar.

Einnig er vakin athygli á því að vert sé að lækka skatta á fjármálafyrirtækin. Í skýrslunni kemur fram að smæð markaðarins, háir skattar og töluvert miklar eiginfjárkröfur „valdi álagi sem hefur verið nefnt „Íslandsálag“. Markaðinn sé erfitt að stækka án aukinnar áhættu eða með því að breyta gjaldmiðilsfyrirkomulagi og eiginfjárkröfur ráðist af mati á ýmiskonar áhættu. Því sé erfitt að draga úr þeim kostnaði til skamms tíma litið. Hins vegar sé hægt að draga úr rekstrarkostnaði með auknu samstarfi um rekstur fjármálainnviða og lækkun sértækra skatta.“

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins og hæstaréttarlögmaður er formaður hópsins sem að Hvítbókinni stendur en auk hans sitja í honum Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður, lausfjáráhætta, fjármálafyrirtæki, á fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands, Guðjón Rúnarsson, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð. Sylvía K. Ólafsdóttir, forstöðumaður hjá Icelandair var einnig skipuð í hópinn og starfaði með honum fram á haust.

Nánar verður fjallað um Hvítbókina í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×