Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Birgir Olgeirsson skrifar
Í fréttatímanum heyrum við í formanni Samfylkingarinnar sem segir ekki tímabært að kveða upp úr um framtíð Ágústs Ólafs Ágústssonar innan þingflokks Samfylkingarinnar, eftir að kona sem hann áreitti lýsti atburðum með öðrum hætti en þingmaðurinn. Hugmyndir stjórnarmeirihlutans um vegatolla hafa hleypt þingstörfum í uppnám og hótar stjórnarandstaðan málþófi. Við skoðum enn einar mettölurnar um met á fjölda  ferðamanna til landsins, heyrum í aðalleikkonu kvikmyndarinnar Kona fer í stríð og margt fleira, á samtengdum rásum Bylgjunnar og Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×