Innlent

Taka vel í hugmyndir um upptöku veggjalda

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Bæjarstjóri Árborgar telur hægt að fjármagna nýja Ölfusárbrú á 12 árum með hóflegu veggjaldi.
Bæjarstjóri Árborgar telur hægt að fjármagna nýja Ölfusárbrú á 12 árum með hóflegu veggjaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Þessar hugmyndir sem nú er verið að kynna sjáum við bara sem einu leiðina til að koma einhverri hreyfingu af stað í samgöngumálum,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, um hugmyndir um að veggjöld verði tekin upp til að flýta fyrir samgönguframkvæmdum.

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á þriðjudag einróma bókun þar sem viðhorfsbreytingu á Alþingi gagnvart slíkri fjármögnun er fagnað. „Umræðan hefur auðvitað þróast töluvert, ekki bara hér á Akranesi, heldur á Vesturlandi öllu. Ég held að Hvalfjarðargöngin séu dæmi um árangursríka framkvæmd sem sýnir að þetta er hægt. Við leggjum hins vegar áherslu á að komi til svona veggjalda, eða flýtigjalda eins og við köllum þetta, verði jafnræði tryggt.“



Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi.FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur haft samgönguáætlun til vinnslu síðan í haust. Í byrjun vikunnar komu fram hugmyndir frá Jóni Gunnarssyni, settum formanni, um breytingartillögu þess efnis að tekin verði upp veggjöld um land allt.

Samkomulag náðist í fyrrakvöld um að afgreiðslu samgönguáætlunar yrði frestað til 1. febrúar næstkomandi. Stjórnarandstöðuþingmenn höfðu gagnrýnt málsmeðferðina harkalega og þann stutta tíma sem vinna átti tillögurnar á. Þær tillögur sem liggja fyrir ganga út á að tekin verði upp veggjöld á öllum stofnleiðum til og frá höfuðborginni, í öllum jarðgöngum landsins auk gjaldtöku vegna einstaka framkvæmda.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að málið hafi enn ekki verið rætt í bæjarstjórn enda tillögurnar ekki fullkláraðar. Engin formleg afstaða liggi því fyrir.

„Það kom samt fram á fundi okkar með þingmönnum Suðurkjördæmis í haust að ekki stæði til að setja veggjöld á Reykjanesbrautina. Sigurður Ingi var sjálfur á þessum fundi. Miðað við umræðuna nú virðist það hafa breyst en við höfum ekkert í hendi um þetta.“

Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Árborg, tekur undir með kollega sínum á Akranesi um að veggjöld séu góð leið til að koma nauðsynlegum samgönguframkvæmdum í gang. „Ég heyri ekki annað en að sveitarstjórnarfólk á Suðurlandi sé almennt hrifið af þessu því það eru ekki aðrar lausnir sjáanlegar.“

Hann nefnir sem dæmi framkvæmd eins og nýja Ölfusárbrú. „Það er auðvitað ljóst að það eru gríðarlega mörg mjög brýn verkefni sem þurfa að komast inn á samgönguáætlun. Miðað við fjárreiður ríkisins er það nánast ókleift að fara út í þau öll en þar er ný Ölfusárbrú eitt af þeim mikilvægustu. Mér reiknast til að það sé hægt að fjármagna þessa brú á tólf árum fyrir veggjald sem væri á bilinu 50-100 krónur á bíl. Það keyra 20 þúsund bílar á dag yfir gömlu brúna á sumrin.“ 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×