Sport

Ingibjörg í 30. sæti á HM

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ingibjörg Kristín
Ingibjörg Kristín Vísir/AFP
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir varð í 30. sæti í keppni í 50 metra baksundi á HM í 25 metra laug í Kína í nótt.

Ingibjörg, sem keppir fyrir SH, synti á 27,99 í undanrásunum í nótt sem dugaði ekki til undanúrslita, þangað komast 16 bestu sundmennirnir.

Besti tími Ingibjargar í greininni er 27,42 sekúndur en Íslandsmetið er 27,40.

Ingibjörg keppir í 50 metra skriðsundi á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×