Bragðbomburnar á Kopar kalla fram minningar Veitingastaðurinn Kopar kynnir 14. desember 2018 13:30 Metnaðarfullir réttir bíða gesta á veitingastaðnum Kopar. „
Síðustu dagar jólavertíðarinnar eru alltaf skemmtilegir. Þá koma yfirleitt smærri hópar, fjölskyldur og vinahópar og fyrir okkur, sem fáum mikið af ferðamönnum á veitingastaðinn, er sérstaklega skemmtilegt að fá umsagnir frá Íslendingunum. Þeir koma á öðrum forsendum en erlendir gestir,“ segir Ylfa Helgadóttir, eigandi og yfirkokkur á veitingastaðnum Kopar. Hún segir ákveðinn línudans að höfða til beggja hópa en galdurinn sé að vera trú eigin gildum.„Við leggjum líka sérstaka áherslu á að nota vöðva og parta sem ekki er algengt að sjá á matseðlum eins og gellur, nautakinnar og nautabrjóst."„Við reynum að falla ekki í þá gildru að eltast við það sem ferðamaðurinn vill heldur lögum matseðilinn að því sem okkur þykir gott og Kopar hefur verið kyndilberi íslensks hráefnis frá opnun, fyrir fimm og hálfu ári síðan,“ segir Ylfa.Jólalegt á Kopar Geirsgötu 3.„Við leggjum líka sérstaka áherslu á að nota vöðva og parta sem ekki er algengt að sjá á matseðlum eins og gellur, nautakinnar og nautabrjóst. Sjaldgæfir vöðvar kalla á sérstaka matreiðslu og hjá okkur starfar fyrsta flokks fagfólk á öllum sviðum. Allt hráefnið er nýtt og ferskt. Við nostrum við hvert smáatriði til að ná fram því besta og leggjum mikla vinnu í að fullkomna matreiðsluaðferðirnar. Við hættum ekki fyrr en við erum ánægð. Við viljum að fólk segir eftir að hafa borðað fisk hjá okkur: „Þetta er besti fiskur sem ég hef smakkað!“ Hefðbundnir jólaréttir í óhefðbundinni útfærslu„Kopar er A la carte staður og við erum ekki með hefðbundin jólahlaðborð. Við útbúum hlaðborð beint á borð gesta. Þannig þarf fólk ekki að standa í röð og losnar líka við valkvíðann því við ákveðum réttina. Við útbúum nýjan matseðil á hverjum ári svo fólk getur komið ár eftir ár og alltaf prófað eitthvað nýtt og spennandi,“ útskýrir Ylfa og segir vel þekktan jólamat á borðum sem lokki fram ljúfar minningar liðinna jóla en komi samt á óvart.Hangikjöt og grænar baunir í óvæntum búningi.„Þetta eru hefðbundnir jólaréttir í óhefðbundinni útfærslu. Við skerum til dæmis þunnar sneiðar af tvíreyktu hangikjöti og leggjum á lítinn hring af laufabrauði sem við steikjum sjálf, svo er kúmenmæjó í stað uppstúfs og grænu baunirnar myljum við yfir. Þetta er auðvitað allt öðruvísi en fólk fær heima en vekur samt upp minningar. Fólk á svo margar matartengdar minningar, sérstaklega frá jólum og þessar litlu bragðsprengjur kalla þær fram,“ segir Ylfa. Þá eru kokkarnir á Kopar óhræddir við að fá fólk til að smakka.Djúpsteikta rauðsprettan á Kopar hefur slegið í gegn.„Einn glænýr hjá okkur er sérstaklega vinsæll, rauðspretta með roðinu á. Íslendingar virðast nefnilega alltaf hálf hræddir við roð en þegar fiskurinn er svona ferskur gefur roðið mjög skemmtilegt bragð. Við djúpsteikjum rauðsprettuna upp á breskan máta. Bretarnir halda roðinu á og djúpsteikja í orly deigi og hella maltediki yfir fiskinn. En við það vill stökk áferðin á deiginu hverfa. Við brugðum því á það ráð að steypa edikið í gel og leggjum það yfir fiskinn. Þannig er edikið hluti af hverjum bita án þess að eyðileggja áferðina á stökku deiginu. Þetta hefur alveg slegið í gegn!“Kokkarnir á Kopar fara ótroðnar slóðir.Fyrirliði landsliðsins í eldhúsi KoparsYlfa hefur verið í íslenska kokkalandsliðinu í sex ár og var fyrirliði þess og þjálfari nú þegar liðið hlaut gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í nóvember. Það hljóta að vera meðmæli með Kopar eða hvað? „Það er pínu skemmtilegt að hafa verið í landsliðinu allan tímann sem ég hef unnið á Kopar. Það var frábært hvað gekk vel á heimsmeistaramótinu, við náðum 90 stigum og hlutum gull. Það er erfitt því það dugir ekki að vera með 89.99. Fyrir tveimur árum munaði ótrúlega litlu að við næðum því og því var rosalega ljúft að ná gullinu núna.“ Girnilegur jólamatseðillVegan jólaævintýri KoparsÞessi kynning er unnin í samstarfi við veitingastaðinn Kopar.
Jólamatur Mest lesið Nýtt myndband af Katrínu vekur athygli Lífið Byggja draumavillu með sundlaug sem kostar sextán milljónir Lífið Pizza King til sölu á þrettán milljónir Lífið Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Lífið Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu Lífið Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Lífið Hamingjusöm og þakklát Katrín Tanja á splunkunýjum jeppa Lífið „Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“ Lífið Kann ekki að gefast upp Lífið Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli Lífið Fleiri fréttir Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Pabbi herra Hnetusmjörs frontar Edrúar fyrir misskilning Ný tækni sýnir ótrúlegan árangur á staðbundinni fitu Bættu lífsgæði sín með CBD olíu og stofnuðu CBD Reykjavík Jakob Svavar og Skarpur sigruðu fyrsta mót Meistaradeildar Líflands 2024 Bragðveisla fyrir sanna sælkera „Ég elska að hreyfa mig en liðirnir voru byrjaðir að kvarta aðeins‘‘ Sjá meira