Tónlist

Truflaði tónleika í von um að heilla fyrrverandi eiginkonu sína

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Eins og sjá má á þessari mynd var Cardi ekki hrifin af uppátæki eiginmanns hennar fyrrverandi.
Eins og sjá má á þessari mynd var Cardi ekki hrifin af uppátæki eiginmanns hennar fyrrverandi. Scott Dudelson/Getty
Rapparinn Offset, þriðjungur rappþríeykisins Migos, vakti mikla athygli um helgina með óhefðbundnu uppátæki sínu þar sem hann ruddist inn á svið á tónleikum hjá fyrrverandi eiginkonu hans, Cardi B, og grátbað hana um að taka hann í sátt. Parið tilkynnti um skilnað sinn fyrr í þessum mánuði eftir ítrekað framhjáhald rapparans.

Rapparinn ruddist inn á sviðið eftir að sviðsmenn höfðu flutt stórt skilti, búið til úr hvítum og rauðum rósum, inn á sviðið en á því stóð „Take me back, Cardi,“ eða „Taktu mig aftur, Cardi.“ Sjálfur hélt Offset á stærðarinnar blómvendi og hljóðnema þar sem hann biðlaði til fyrrverandi eiginkonu sinnar að taka sig í sátt.

Cardi var lítið skemmt við þetta uppátæki rapparans og stökk ekki bros meðan á látunum stóð. Aðra sögu er að segja um áhorfendasakarann sem var viðstaddur tónleikana, en viðbrögð tónleikagesta voru afar misskipt. Meðan sumir hreinlega ærðust úr fögnuði þótti öðum lítið til þessarar uppákomu Offset koma og bauluðu á rapparann.

Nokkrum klukkustundum áður en rapparinn gerði þessa óhefðbundnu tilraun til þess að heilla Cardi birti hann myndband á Instagram-síðu sinni sem var í sama stíl og þessi dramatíska innkoma, þar bað hann Cardi afsökunar á öllu saman og biðlaði til hennar um að taka sig í sátt. Cardi og Offset eiga saman eina litla dóttur, Kulture, en hún er fimm mánaða gömul.

Myndbandið af atvikinu má sjá hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Hræðilegir skilnaðarskellir

Í vikunni bárust skelfileg tíðindi – rappparið Cardi B og Offset eru skilin! Mörgum er það eflaust þungbært en þau skildu þó í mikilli vinsemd. Hér er farið yfir nokkra af erfiðustu skilnuðum síðustu ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×