Innlent

Tekinn með 50 fölsuð íslensk strætókort

Birgir Olgeirsson skrifar
Í fórum sínum hafði hann 50 íslensk níu mánaða strætókort að verðmæti ríflega þrem milljónum króna.
Í fórum sínum hafði hann 50 íslensk níu mánaða strætókort að verðmæti ríflega þrem milljónum króna. vísir/vilhelm
Lögreglumenn í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum handtóku í fyrrinótt karlmann sem var að koma með flugi frá Varsjá og færðu hann á lögreglustöð.

Í fórum sínum hafði hann fimmtíu íslensk níu mánaða strætókort að verðmæti ríflega þrem milljónum króna. Tollverðir höfðu stöðvað manninn við komuna hingað.

Grunur leikur á að kortin hafi verið fölsuð erlendis og ætluð til sölu hér á landi í ágóðaskyni. Lögregla haldlagði þau, svo og umslög sem þau fundust í og farsíma umrædds aðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×