Tónlist

Vala Eiríks velur plötur ársins 2018: „Fékk bónerinn minn aftur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Eiríks starfar á FM957.
Vala Eiríks starfar á FM957.
Fjölmargar plötur komu út á árinu 2018 og slógu margar þeirra rækilega í gegn. Vísir mun á næstu dögum ræða við tónlistarspekinga og hafa þeir allir valið þrjá bestu innlendu plötur ársins og þrjár bestu erlendu plötur ársins 2018.

Útvarpskonan Valdís Eiríksdóttir á FM 957 hefur tekið saman sex plötur sem þóttu skara fram úr á árinu.

Íslenskar plötur ársins:

1. Ylja – Dætur

Þessar stelpur eru uppáhaldið mitt og sem sérlegur þjóðlagaperri kolféll ég fyrir plötunni, Dætur. Vel unnin, hrein og tær. Raddirnar þeirra fara fullkomlega saman og gefa lögunum sem við þekkjum öll og elskum nýtt líf, með fortíðarsjarma samt.

2. Todmobile – Hermaur

Þetta er kannski pínku svindlsvar þar sem þetta er safnplata, en hún kom út á þessu ári svo ég leyfi mér bara víst að setja hana á listann minn. Elska Todmobile, að eilífu, Amen.

3. Herra Hnetusmjör – Hetjan úr hverfinu

Ókei, ég veit að allir sem mig þekkja fá hland fyrir hjartað núna, enda hata ég rapp.. Hata. En ég veit ekki. Hnetusmjör lætur mér líða svalri þegar ég hlusta á hann og lagið Keyra og Upp Til Hópa tryggir þriðja sætið á þessum lista. 

Erlendar plötur ársins: 

1. Børns – Blue Madonna


Ég uppgötvaði Børns fyrr á þessu ári og hef verið húkkt síðan. Sko óþolandi húkkt. Hann er töfrar og tónlistin hans fær mig til að kikna í hnjánum. Myndi giftast honum ef hann vildi mig. Uppáhalds lagið á plötunni er Faded Heart.

2. Muse - Simulation Theory

Það er eitthvað við hljóminn þeirra sem bara heldur mér. Ég, eins og svo margir aðrir, hef verið pínkulítið föst í fortíðinni hvað Muse varðar, en svo kom þessi plata! Ómægod hvað ég fékk bónerinn minn aftur. Ég verð eiginlega að taka Propaganda sérstaklega fyrir, því það er áráttulagið mitt þessa dagana, alveg nettur Prince í því.

3. First Aid Kit – Ruins

Ég er með netta First Aid Kit áráttu, alveg síðan ég heyrði Wolf. Ef þú kannt að meta vandaða texta, melodíur sem tala við sálina þína og fullkomnar raddanir þá eru sænsku drottningarnar þínar. Ruins er unaður. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×