Lífið

Alltaf í bað á aðfangadag

Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar
Eftir 30 ára vináttu og samstarf í einni vinsælustu hljómsveit landsins er forvitnilegt að vita hversu vel Sigga og Grétar þekkjast í raun.
Eftir 30 ára vináttu og samstarf í einni vinsælustu hljómsveit landsins er forvitnilegt að vita hversu vel Sigga og Grétar þekkjast í raun. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
„Ég ákvað í sumar að semja jólalag fyrir þessi jól og settist niður við píanóið í lok október. Lagið kom nokkuð fljótt til mín og tók litlum breytingum frá fyrstu hugmynd,“ upplýsir Grétar um allra fyrsta jólalag Stjórnarinnar sem nú heyrist oft í útvarpinu á indælli aðventunni

Jólalagið, Enn ein jól, slær heillandi klukknahljómi við endalok þrítugasta afmælisárs hljómsveitarinnar.

„Mér fannst tilvalið að koma með jólalag í tilefni 30 ára afmælis Stjórnarinnar og svo er Sigga alltaf með sína árlegu jólatónleika,“ segir Grétar en Sigga er einmitt með sína árlegu og vinsælu jólatónleika í Hörpu í kvöld og á morgun.

„Grétar kom til mín með hugmynd að laginu, mjög hrátt að vísu, en ég heyrði samt að það var eitthvað þarna sem heillaði. Áður en ég vissi af var hann búinn að útsetja lagið ásamt Mána Svavars og Þóri Úlfars og svo spiluðu strákarnir lagið inn og ég söng það fyrir sirka tíu dögum. Útkoman er bara fínasta jólalag; það fyrsta sem Stjórnin sendir frá sér og líka fyrsta jólalagið sem við Grétar syngjum saman,“ segir Sigga sæl og í kátu jólaskapi.

„Textinn er eftir Braga Valdimar og er aðfangadagshugleiðing með draumkenndu ívafi og ósk um að vera í faðmi ástvina yfir jólin,“ útskýrir Grétar um grípandi jólalag Stjórnarinnar sem er að slá í gegn.

En hversu vel þekkja þau Sigga og Grétar hvort annað eftir 30 ára vináttu og farsælt Stjórnarsamstarf? Hér svara þau fáeinum jólaspurningum sem leiða það í ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×