Mandzukic tryggði Juventus sigurinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Króatinn var hetja kvöldsins
Króatinn var hetja kvöldsins vísir/getty
Mario Mandzukic tryggði Ítalíumeisturum Juventus sigur gegn Inter í stórleik í ítölsku Seria A deildinni í fótbolta í kvöld.

Sigurmarkið kom á 66. mínútu. Joao Cancelo átti sprett upp vinstri kantinn, gaf boltann inn í teiginn þar sem Mandzukic var mættur og skallaði boltann í netið.

Bæði lið áttu sín færi til þess að gera mörkin fleiri en ekki varð þeim að ósk sinni og lokatölur 1-0 fyrir Juventus.

Ítalíumeistararnir eru því enn ósigraðir á toppi deildarinnar og virðist fátt geta komið í veg fyrir að þeir verji titil sinn, Napólí er 11 stigum á eftir Juventus í öðru sætinu og Inter þar fyrir neðan 14 stigum á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira