Sport

Róbert Ísak fjórfaldur Norðurlandameistari

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Róbert Ísak Jónsson fyrir miðju.
Róbert Ísak Jónsson fyrir miðju. Facebook - Íþróttasamband fatlaðra
Norðurlandamót í sundi fatlaðra hefur farið fram í Finnlandi undanfarna daga og þar hafa fjölmargir íslenskir keppendur gert gott mót.

Einn þeirra, Róbert Ísak Jónsson, var rétt í þessu að hampa sínum fjórðu gullverðlaunum á mótinu þegar hann sigraði 200 metra fjórsund.

Áður hafði Róbert Ísak unnið 100 metra flugsund, 100 metra bringusund og 200 metra skriðsund.

Keppni á mótinu lýkur í dag og heldur íslenski hópurinn svo heim á leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×