Lífið

Ellen gerði Michelle Obama lífið leitt í Costco

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ellen truflaði Obama töluvert í Costco.
Ellen truflaði Obama töluvert í Costco.
Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres og Michelle Obama hafa í gegnum tíðina farið saman í verslunarleiðangra í þáttum Ellen.

Nú var komið verslunarkeðjunni Costco en Obama gaf á dögunum út bókina Becoming og settist hún við borð í Costco og gaf áritanir.

Ellen var heldur betur með læti í versluninni og má með sanni segja að hún hafi gert Michelle Obama nokkuð vandræðalega eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×