Lífið

Óheppilegt „mæm“ Ritu Ora vekur athygli

Sylvía Hall skrifar
Söngkonan átti ekki góðan dag í göngunni.
Söngkonan átti ekki góðan dag í göngunni. Getty/Kevin Winter
Söngkonan Rita Ora var á meðal þeirra sem komu fram í hinni árlegu Macy‘s skrúðgöngu á þakkargjörðardaginn. Atriði söngkonunnar hefur verið umtalað eftir skrúðgönguna þar sem þótti nokkuð augljóst að hún var ekki sjálf að syngja.





Mikill kuldi var í New York þegar gangan fór fram en hitastigið fór undir frostmark og er þá algengt að söngvarar notist við upptökur af lögum sínum þegar þeir koma fram. Tæknilegir örðugleikar urðu til þess að söngkonan var nokkrum sekúndum á eftir laginu sjálfu.





Macy‘s setti færslu á Twitter-síðu sína þar sem þeir báðust afsökunar á þeim tæknilegu örðugleikum sem voru í skrúðgöngunni og sögðu að þetta væru alfarið þeirra mistök en ekki söngkonunnar.





Þá kom söngvarinn John Legend henni til varnar og sagði alla söngvara þurfa að mæma í skrúðgöngunni.





Rita Ora lét engan bilbug á sér finna og þakkaði gestum fyrir komuna sem og Macy‘s fyrir þeirra afsökunarbeiðni. +

 





Lengri útgáfu af flutningnum má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×