Lífið

Lyftir tonni, lærir sagnfræði og liðsinnir ungu fólki á Stuðlum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Júlían er 25 ára gamall og hefur stundað kraftlyftingar af krafti síðan hann var fimmtán ára.
Júlían er 25 ára gamall og hefur stundað kraftlyftingar af krafti síðan hann var fimmtán ára.
Hann vegur sjálfur tæp 170 kíló, lyfti 410 kílóum í hnébeygju, 300 kílóum í bekkpressu og gerði sér svo lítið fyrir og bætti heimsmet þegar hann tók 405 kíló í réttstöðulyftu á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð á dögunum.

Júlían J. K. Jóhannsson er 25 ára gamall og hefur stundað kraftlyftingar af krafti síðan hann var fimmtán ára. Hann segir íþróttina fljótt hafa togað í sig, enda þrettán ára gamall orðin 90 kíló og kominn í skó númer 50.

Með egg og skyr í Menntaskólanum við Hamrahlíð

Júlía, sem er mikill miðbæjarmaður og gekk í Austurbæjarskóla, viðurkennir að hafa staðið svolítið út úr með skyrdósina sína og eggin í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð á sínum tíma.

Í dag æfir hann af krafti auk þess að nema sagnfræði við HÍ og starfa með ungu fólki á Stuðlum. Hann kveðst aldrei hafa notað stera eða önnur lyf til að stytta sér leið í lyftingunum og segir markmiðið að greinin verði lyfjalaust umhverfi.

„Ég man að ég las á svona spjallsvæðum á netinu að það væri ekki hægt að ná einhverjum x árangri nema á lyfjum. Svo man ég þegar ég var sautján ára þá náði ég þessum x árangri. Ég hugsaði, ég er ekki á lyfjum en ég náði þessu,“ segir Júlían.



Meira hægt en fólk gerir sér grein fyrir

Hann hafi áttað sig á að téðar umræður í netheimum endurspegluðu ekki raunveruleikann, og rétta leiðin væri einfaldlega að setja sér markmið og fylgja þeim stíft eftir.



„Í mínum huga snýst þetta bara um að vinna og það er miklu meira hægt en fólk kannski gerir sér grein fyrir.“

Júlían lyfti samtals 1115 kílóum í þremur greinum á mótinu í Svíþjóð og hafnaði í fjórða sæti í samanlögðum árangri. Hann setur hins vegar markið hátt.

„Ég stefni bara á fyrsta sætið.“



Rætt verður við Júlían og hvolpinn hans Storm í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax eftir kvöldfréttir.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×