Lífið

Sjö vinsæl kynlífsöpp

Stefán Árni Pálsson skrifar
Allt er nú til.
Allt er nú til.
Snjallsímaöpp eru eins misjöfn og þau eru mörg. Sumir vilja kannski meina að kynlíf og snjallsíminn eigi ekki vel saman en aðrir eru augljóslega ekki sammála.

Vefsíðan Mashable  hefur tekið saman sjö öpp sem hægt er að nota í forleik.

Alveg frá því að nota símann sem fjarstýringu á kynlífstæki yfir í aðstoð við dónalegt tal. Þetta er allt hægt með símanum.

Hér að neðan má sjá hvað öpp er um að ræða.

1. Dirty Game - Hot Truth or Dare
Sannleikurinn eða kontór.
2. Kindu
Kindu er í raun app eins og Tinder nema fyrir pör sem vilja prófa nýja hluti.
3. OhMiBod
Með OhMiBod er hægt að tengja allskyns hjálpartæki ástarlífsins við símann í gegnum bluetooth eða þrjáðlaust net. Þá er í raun hægt að vera í forleik í sitthvorri heimsálfunni.
4. Desire
Desire er app með allskonar kynlífsleikjum. Áskoranir og t.d. ákveðnar reglur þegar kemur að klæðaburði.
5. iKamasutra
iKamasutra er kynlífsstellingaapp.
6. Pleasure Machine
Pleasure Machine er í raun einskonar spilakassi þar sem maður fær vinninga tengt kynlífi.
7. Honi
Honi er app fyrir pör sem vilja krydda upp á kynlífið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×