Innlent

Hviður allt að 45 metrum á sekúndu víða um land í miklu hríðar­veðri og stormi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vindaspáin fyrir kvöldið er ekkert sérstök.
Vindaspáin fyrir kvöldið er ekkert sérstök. veðurstofa íslands
Appelsínugul viðvörun mun taka gildi á Suðausturlandi klukkan 18 í dag vegna norðaustan roks eða ofsaveðurs en gul viðvörun tekur gildi í hádeginu, líkt og raunin er nánast um allt land. Þannig er gul viðvörun í gildi frá hádegi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og Austfjörðum.

„Við erum að vara við hríðarveðri, miklum vindi og snjókomu á norðanverðu landinu, frá Breiðafirði og Vestfjörðum, með norðurströndinni allri og Norðurlandi og síðan á Austurlandi, að sunnanverðum Austfjörðum. Þar verður mjög hvasst og skafrenningur og færð væntanlega erfið mjög fljótlega,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi.

Slydda er nú á láglendi í þessum landshlutum og snjókoma til fjalla en svo bætir í úrkomu og vind eftir því sem líður á daginn.

Þá segir Elín að það muni halda áfram að bæta í vind undir Vatnajökli á suðaustanverðu landinu en á vef Veðurstofunnar er varað við hviðum frá 45 og upp í 55 metra á sekúndu í kvöld og nótt frá Lómagnúpi og austur að Höfn. Slíkar aðstæður eru hættulegar til ferðalaga þar sem líkur eru á grjóti og sandfoki.

Hviður munu einnig ná allt að 45 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum, á Snæfellsnesi og við Hafnarfjall en allt að 35 metrum á sekúndu á Kjalarnesi og í norðanverðum Breiðafirði.

Varasamt ferðaveður verður því víða um land og líkur á samgöngutruflunum og ætti fólk að fylgjast vel með veðurspám og færð á vegum.

Elín Björk segir að ekki sé útlit fyrir neinn éljagang á höfuðborgarsvæðinu í þessu óveðri en norðnorðaustan áttin verði mjög hvöss, bæði á Kjalarnesi og í efri byggðum, en mun mögulega einnig ná inn í vestanverða borgina. Veðrið mun síðan ganga hægt niður á morgun.

Ábending frá veðurfræðingi á vef Vegagerðarinnar:

 

Síðdegis og til morguns er spáð ofsaroki með N- og NA-átt, sérstaklega sunnan jökla þar sem verður líka sviptivindasamt.  25-30 m/s á hringveginum frá Lómagnúpi austur á Höfn með hámarki í fyrrmálið.  Hviður um og yfir 50 m/s. Einnig hviður 40-50 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdal.  Hviðuveður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli eftir kl. 20 í kvöld. NA- og A-lands er reiknað með stórhríðarveðri  í kvöld með stormi. Fljótt kóf og lélegt skyggni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×