Innlent

Konur helmingur þingmanna í aðeins þremur ríkjum heims

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Donatille Mukabalisa er þingforseti neðri deildar þingsins í Rúanda en hún hefur gegnt þingmennsku í átján ár.
Donatille Mukabalisa er þingforseti neðri deildar þingsins í Rúanda en hún hefur gegnt þingmennsku í átján ár. Vísir/Sigurjón
Konur skipa helming þingsæta eða meira í aðeins þremur ríkjum heims. Rúanda er eitt þeirra en forseti neðri deildar þingsins þar í landi segir gott regluverk og þátttöku karla í jafnréttisbaráttunni gegna lykilhlutverki. Mikill árangur hafi náðst í jafnréttisbaráttunni þar í landi eftir að stríðinu 1994 lauk.

Heimskort sem sýnir hlutfall kvenna í áhrifastöðum á heimsvísu  var kynnt í dag á alþjóðlegri ráðstefnu kvenleiðtoga sem staðið hefur yfir hér á landi undanfarna tvo daga. Í aðeins 48 ríkjum heims eru konur 30% eða fleiri af heildarfjölda þingmanna. Ísland er í 21. sæti listans.

Kortið er töluvert tómlegra ef litið er til þeirra ríkja þar sem konur skipa minnst helming þingsæta. Hlutfall kvenna á þingi er hæst í Rúanda eða 60% og rúmlega 50% í Bólivíu og Kúbu.





Á kortinu má sjá þau ríki þar sem konur eru minnst helmingur þingmanna.Kort/aðsent
Donatille Mukabalisa er þingforseti neðri deildar þingsins í Rúanda en hún hefur gegnt þingmennsku í átján ár. „Þetta erland sem fram til 1994 einkenndist af sundrung og útilokun. Þetta náði hámarki með þjóðarmorðinu á Tútsum 1994,“ segir Mukabalisa. 

Eftir stríðið hafi hlutirnir breyst en lög um kynjakvóta tryggja að konur eru minnst helmingur þingmanna í Rúanda. „Ég gerðist stjórnmálamaður af því ég vildi koma með framlag móður minnar til þess að byggja landið upp eftir að það var lagt í rúst.“

Ísland er það ríki í heiminum þar sem mælst hefur hvað mest kynjajafnrétti komst Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, yngsti kvenráðherrann, nýverið á lista yfir hundrað áhrifamestu ungu stjórnmálamenn í heimi. 

En hvað geta ríki eins og Ísland lært af ríkjum á borð við Rúanda?

„Við höfum meðal annars þróað sterk tengsl við mismunandi stofnanir og eigum líka gott samstarf við karlmenn. Til að tryggja að málefni kynjanna njóti skilnings allra borgara á öllum stigum,“ segir Mukabalisa.

Aðeins í Rúanda, Bólivíu og Kúbu eru konur fleiri en karlar á þingi.Kort/CAPACENT og OxfordAnalytica



Fleiri fréttir

Sjá meira


×