Innlent

Pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Reykjanesbær hélt í dag menningarhátíð þar sem gestir gátu smakkað á pólskum þjóðréttum og kynnt sér pólska menningu og siði. Tilefnið er hundrað ára afmæli sjálfstæðis þjóðarinnar og segir skipuleggjandi hátíðarinnar áríðandi að fólk af erlendum uppruna fái tækifæri til þess að kynna uppruna sinn með þessum hætti.

Blásið var til hátíðarinnar í Ráðhúsi Reykjanesbæjar í dag og var húsið skreytt hátt og lágt með pólskum einkennum. Bæjarfélagið stóð að hátíðinni í samstarfi við starfshóp íbúa af pólskum uppruna.



Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Reykjanesbæ.Vísir/Stöð 2
„Við fórum að hugsa um leiðir til þess að auka þátttöku íbúa af erlendum uppruna í samfélaginu almennt og í viðburðum sem Reykjanesbær stendur frammi fyrir og þá kom upp þessi hugmynd að vera með svona hátíð sem væri eignarhald þessa stóra hóps sem býr hérna í Reykjanesbæ,“ segir Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Reykjanesbæ.

Hilma segir að næstum fjórðungur íbúa í Rekjanesbæ sé með erlent ríkisfang og næstum sextíu prósent af þeim hafi pólskt ríkisfang. Hún segir mikilvæg að samfélagið sem þannig búið að allir íbúar geti tekið þátt. Þetta er í fyrsta sinn sem Reykjanesbær stendur fyrir hátíð sem þessari.

„Við viljum hugsa þetta þannig að við séum eitt samfélag. Við viljum að erlendir ríkisborgarar geti tekið þátt í okkar samfélagi en þeir hafa sína menningu og við viljum líka kynnast henni og það gerir samfélagið bara svo miklu betra og ríkara að hér sé allskonar fólk, segir Hilma.

Ungmenni af pólskum uppruna voru áberandi í dagskrá hátíðarinnar í dag sem var vel sótt. Skipuleggjendur voru ánægð með að fá tækifæri til þess að kynna sögu Póllands sem á svo margan hátt sem samofin íslensku samfélagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×