Innlent

Fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut

Birgir Olgeirsson skrifar
Slysið varð síðdegis í dag.
Slysið varð síðdegis í dag. Vísir/Vilhelm
Fjögurra bíla árekstur varð á Reykjanesbraut til móts við IKEA rétt í þessu. Ekki er talið að neinn hafi slasast alvarlega, en slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi sjúkrabíl á vettvang ásamt dælubíl vegna gruns um að olía læki frá ökutækjunum.

Einhverjar umferðartafir eru á staðnum en varðstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bjóst ekki við að flytja þyrfti einhvern á sjúkrahús. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×