Lífið

Fékk 30 daga til að undirbúa sig fyrir helstu áskorun lífsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Matt sáttur í lokin.
Matt sáttur í lokin.
Strákarnir tveir í Yes Theory efndu á dögunum til samkeppni á YouTube síðu sinni þar sem áhorfendur gátu sent inn umsókn um aðstoð frá þeim að upplifa þeirra helsta draum.

Matt Dajer hefur lengi langað að taka þátt í hálfum járnkarli og varð hann fyrir valinu. Sett var upp þrjátíu daga æfingaprógram fyrir Matt til að undirbúa sig.

Til að byrja með var kappinn heldur betur ekki til í slaginn. Verkefnið er að synda um tvo kílómetra, hjóla síðan 90 kílómetra og að lokum þarf að hlaupa 21 kílómetra.

Fyrir þetta hafði Matt 30 daga til að undirbúa sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×