Lífið

Krefjast þess að kræfur kalkúnn verði krýndur bæjarstjóri

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hér má sjá kalkúninn Smoke á góðri stundu.
Hér má sjá kalkúninn Smoke á góðri stundu. Facebook/Rick Young
Villikalkúnninn Smoke hefur verið gerður að hálfgerðum heiðursbæjarstjóra í bænum Ashwaubenon í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum.

Smoke hefur síðastliðna mánuði valdið usla í Ashwaubenon en hann hefur átt það til að standa á miðjum umferðargötum eða elta gangandi börn á leið til skóla.

Stjórnvöld í bænum hafa gert ófáar, en árangurslausar, tilraunir til þess að koma böndum á hinn réttnefnda villikalkún, þar sem óttast er að hann geti valdið sjálfum sér eða öðrum skaða.

Í samtali við Washington Post sagði Randy Tews, yfirmaður almenningsöryggismála í Ashwaubenon að verulega erfitt hafi reynst að ná kalkúninum snjalla.

„Dýraeftirlitsfólkið okkar er nokkuð gott, en hreyfingar hans [Smoke] svipa til ninja-stríðsmanns. Þeim hefur gegnið illa að klófesta hann.“

Nú hefur Smoke öðlast velvild þó nokkurra íbúa bæjarins og hafa margir kallað eftir því að Smoke verði gerður að bæjarstjóra Ashwaubenon. Þá hefur verið stofnaður Facebook-hópur til heiðurs Smoke en hann ber nafnið Smoked Turkey – Mayor of Ashwaubenon, en það útlistast á íslensku sem Kalkúnninn Smoke – Bæjarstjóri Ashwaubenon. Hópurinn telur eins og stendur um það bil 2500 meðlimi.

Þrátt fyrir samhuginn sem virðist ríkja hjá bæjarbúum í velvild sinni gagnvart kalkúninum uppátækjasama segjast yfirvöld bæjarins vona að Smoke snúi aftur til síns heima úti í nátturunni þegar snjóa tekur á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×