Körfubolti

Kjóstu um leikmenn og tilþrif októbermánaðar

Íþróttadeild skrifar
Tilnefningar um leikmann október í Domino's deild karla
Tilnefningar um leikmann október í Domino's deild karla s2 sport
Domino's Körfuboltakvöld á Stöð 2 Sport stendur fyrir kosningu á besta leikmanni og tilþrifum Domino's deildanna. Kosningin fer fram hér á Vísi.

Sigurvegararnir fá vegleg verðlaun og því til mikils að vinna. Kosningin stendur yfir til mánudags en úrslitin verða kunngjörð í Domino's Körfuboltakvöldi föstudaginn 9. nóvember klukkan 22:00. 

Í Domino's deild karla eru þrír leikmenn tilnefndir sem leikmaður mánaðarins. Það eru Eyjólfur Ásberg Halldórsson, Urald King og Hörður Axel Vilhjálmsson.

Eyjólfur spilar með nýliðum Skallagríms sem hafa gert gott mót og eru með tvo sigra úr fyrstu fimm leikjum sínum. Eyjólfur, sem er fæddur árið 1998, er með 21 stig að meðaltali í leikjunum fimm, 7 fráköst og 5,4 stoðsendingar.

Urald King hefur farið á kostum með Tindastól í upphafi tímabils og er frammistaða hans ein af ástæðum þess að Stólarnir eru taplausir á toppi deildarinnar. King er frákastahæstur í deildinni með 13 fráköst að meðaltali í fjórum leikum auk þess að vera með 22 stig og 3,5 stoðsendingar.

Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson er lykilmaður í liði Keflavíkur sem er með þrjá sigra í fjórum leikjum. Hörður Axel er með 15,3 stig, 5,5 fráköst og 8 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Tilnefningar um leikmann október í Domino's deild kvennas2 sport
Í Domino's deild kvenna eru fjórar tilnefndar sem leikmaður mánaðarins og eru það bandarísku leikmenn fjögurra af fimm efstu liðunum.

Danielle Rodriguez var frábær með Stjörnunni síðasta vetur og hefur haldið því áfram á þessu tímabili. Sömu sögu má segja um Kristen McCarthy hjá Snæfelli. Þær eru báðar stiga-, frákasta- og stoðsendingahæstar hjá sínum félögum í fyrstu leikjunum sex.

Lele Hardy snéri aftur til Hauka í sumar og hefur komið inn í deildina af krafti. Hún er frákastahæst í deildinni eftir sex umferðir með 16,2 fráköst að meðaltali í leik.

Brittany Dinkins er annar Bandaríkjamaður sem var áfram hjá sínu félagi í sumar. Hún hefur farið hamförum í stigaskorun með Keflavík, ekki síst í síðasta leik gegn Breiðabliki þar sem hún skoraði 51 stig. Það skilaði henni í efsta sæti stigalistans í deildinni með 33,8 stig að meðaltali í leik.

Tilþrif október



Fleiri fréttir

Sjá meira


×