Lífið

Sjáðu Herra Hnetusmjör gera hnetusmjör

Stefán Árni Pálsson skrifar
Herra Hnetusmjör á sitt eigið hnetusmjör.
Herra Hnetusmjör á sitt eigið hnetusmjör.
Rapparinn Herra Hnetusmjör hefur tryllt lýðinn að undanförnu með plötunni sinni Hetjan úr hverfinu.

Hann hefur einnig gert það gott með hnetusmjörið sitt, sem varð kveikjan að borgara á Fabrikkunni.

Kjartan Atli Kjartansson skellti sér í verksmiðju Hafbergs í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 á föstudagskvöldið.

Þar fór hann í gegnum framleiðsluferlið á hnetusmjöri Herra Hnetusmjörs og hvernig ferlið er frá a-ö.

Hér að neðan má sjá hvernig þetta fór allt saman fram. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×