Sport

Vann ekki leik í 634 daga en rekinn 39 dögum eftir að hann vann loks leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólíklegt er að það verði slegist um þjónustu Hue Jackson.
Ólíklegt er að það verði slegist um þjónustu Hue Jackson. vísir/getty
NFL-liðið Cleveland Browns rak í gær þjálfara liðsins, Hue Jackson, sem hafði hangið ótrúlega lengi í starfi þrátt fyrir hörmulegan árangur.

Á fyrsta ári Jackson með liðið vann það einn leik en tapaði fimmtán. Vont en lengi gat vont versnað. Á síðustu leiktíð tapaði Browns öllum sínum leikjum. Aðeins annað liðið í sögunni sem fer í gegnum heila leiktíð án þess að vinna leik.

Einn sigurleikur í 32 leikjum var ekki nóg til þess að reka Jackson. Hann var enn þjálfari í upphafi þessa tímabils. Það byrjaði ágætlega. Jafntefli í fyrsta leik gegn Pittsburgh og svo komu tveir sigurleikir.

Síðustu leikir aftur á móti verið hörmulegir og Jackson var rekinn í gær. 39 dögum eftir að hann vann loksins aftur leik með Browns. Biðin á milli sigra var 635 dagar.

Í heildina stýrði Jackson liði Browns í 40 leikjum. Hann vann þrjá, gerði eitt jafntefli og tapaði 36.  Þetta er næstversti árangur allra þjálfara frá upphafi sem hafa náð 40 leikjum með sín lið.

Aðeins Bert Bell var lélegri þjálfari er hann var með Philadelphia Eagles frá 1936 til 1940. Hann var líka með Steelers 1941.  Ástæðan fyrir því að hann var svona lengi þjálfari Eagles er að hann var líka eigandi liðsins.

NFL

Tengdar fréttir

Browns rekur þjálfarann

Það gengur ekki vel hjá íþróttaliðunum í Cleveland og nú er búið að reka báða aðalþjálfarana í borginni á tveimur dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×