Innlent

Ók á Seljakjör

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Eins og sjá má urðu miklar skemmdi á inngangi verslunarinnar
Eins og sjá má urðu miklar skemmdi á inngangi verslunarinnar Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Bifreið var ekið á inngang verslunarinnar Seljakjör við Seljabraut í Breiðholti á tólfta tímanum í kvöld.

Tildrög óhappsins eru óljós og ekki liggur fyrir hvort einhver hafi slasast. Til allrar mildi var verslunin lokuð þegar atvikið átti sér stað og því enginn umgangur um innganginn.

Eins og sjá má urðu töluverðar skemmdir á versluninni. Einnig urðu töluverðar skemmdir á bílnum sem var dreginn af vettvangi með kranabifreið.

Verktakar voru svo fengnir til þess að loka innganginum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×